Boðorðin
- Sýndu öllum lifandi verum samkennd, komdu vel fram og vertu kurteis.
- Líkami hvers einstaklings er hans musteri og aðeins háður hans ákvörðunum og vilja.
- Farðu að lögum þess samfélags sem þú ert í. Ef lögin eru ósanngjörn eða óþörf skaltu ekki brjóta þau heldur vinna að því að breyta þeim.
- Taktu ábyrgð á eigin mistökum og gerðu allt sem þú getur til að leiðrétta þau.
- Byggðu skoðanir þínar á rökum og skynsemi. Sættu þig við að þú getir haft rangt fyrir þér og vertu tilbúinn að skipta um skoðun eftir því sem við á.
- Öllum boðorðum er ætlað kalla fram samkennd, skynsemi og réttlætiskennd. Boðorðin eru ekki lög eða reglur og eru ekki meitluð í stein.
